Öllum blaðberum Fréttablaðsins hefur verið sagt upp störfum. Haft var eftir Hannesar Alfreðs Hannessonar, framkvæmdastjóra Pósthússins, í fréttum Útvarpsins, að uppsagnirnar séu liður í endurskipulagningu á öllu dreifikerfi fyrirtækisins.
Fram kom að Fréttablaðið verði áfram borið í hús og reiknað sé með að einhverjir blaðberanna verði ráðnir aftur.