Á fimmta tug verkamanna, iðnaðarmanna og skrifstofumanna hefur verið sagt upp í þessari viku á Akranesi, samkvæmt upplýsingum Verkalýðsfélags Akraness. Flestir þeirra sem sagt hefur verið upp eru með eins mánaðar uppsagnarfrest þannig að síðasti starfsdagur flestra verður 30. nóvember.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness skrifar á heimasíðu félagsins að óhætt sé að segja að komandi mánaðamót verði blóðug fyrir verkafólk, iðnaðarmenn og skrifstofufólk.
„Nánast allar uppsagnirnar tengjast starfsemi í byggingariðnaði og er óhætt að segja að byggingarmarkaðurinn sé nánast helfrosinn og því miður ber formaður félagsins verulegan kvíðboga fyrir því að mun fleiri uppsagnir eigi eftir að líta dagsins ljós áður en kemur að mánaðarmótum,“ skrifar Vilhjálmur.
Hann segir ljóst að mörg heimili muni eiga um sárt að binda í þeim hörmungum sem nú dynja á íslensku atvinnulífi í kjölfar þeirrar hrinu uppsagna sem nú ríður yfir íslenskan vinnumarkað.
„Það er deginum ljósara að íslensk stjórnvöld verða að koma íslenskum launþegum og heimilum landsins til hjálpar og það tafarlaust ef ekki á verulega illa að fara fyrir íslenskum heimilum,“ skrifar formaður Verkalýðsfélags Akraness.