Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, gagnrýnir í samtali við finnska útvarpið, að Norðurlöndin skyldu ekki á fundum í Helsinki í byrjun vikunnar hafa komið sér saman um raunhæfa áætlun um aðstoð við Íslendinga.
Sænska fréttastofan TT vísar í viðtal, sem finnska útvarpið Yle átti við Gahr Støre. Þar sagði norski utanríkisráðherrann, að Ísland bæri vissulega ábyrgð á því hvernig mæta eigi fjármálakreppunni. „En þegar norrænt bræðraland lendir í erfiðleikum eigum við að taka höndum saman," segir hann.
Á fundum norrænu forsætisráðherranna í Helsinki var ákveðið að setja á stofn embættismannahóp undir forustu Svía til að fylgjast með þróun mála á Íslandi, framvindu samkomulags Alþjóðagjaldeyrissjóðsins við Ísland og hvernig Norðurlöndin gætu haft aðkomu að því máli.