Ákveðið hefur verið ákveðið að endurráða alla núverandi starsmenn Kjötbankans ehf. Alls var 18 starfsmönnum sagt upp í ágústlok en sex hafa horfið til annara starfa eða farið í nám. Þrír nýir starfsmenn verða ráðnir til fyrirtækisins, að sögn Helga Einarssonar, framkvæmdastjóra.
Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir, að endurskipulagning hafi staðið yfir á rekstri fyrirtækisins síðustu 2 mánuði með öflugri þáttöku starfsmanna og megi segja að nú sé fyrirtækið komið í góðan rekstur.
Stöðug endurskoðun framleiðsluferla muni eiga
sér stað í ljósi markaðsaðstæðna.