BÍ með áhyggjur af fjölmiðlum á Íslandi

Skjárinn hefur sagt upp öllu starfsfólki og fjöldauppsagnir hafa verið …
Skjárinn hefur sagt upp öllu starfsfólki og fjöldauppsagnir hafa verið á öðrum miðlum að undanförnu. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Stjórn Blaðamannafélags Íslands hefur samþykkt eftirfarandi ályktun:

Blaðamannafélag Íslands lýsir yfir þungum áhyggjum af þeirri alvarlegu stöðu sem er komin upp í fjölmiðlum sem birtist í fjöldauppsögnum og lokun fjölmiðla.

Félagið fagnar því að menntamálaráðherra ætli að skipa starfshóp til að koma með tillögur til úrbóta. Félagið telur augljóst að skoða þurfi sérstaklega stöðu Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði. Samkeppnisstaða fjölmiðla hefur verið erfið vegna sterkrar stöðu Ríkisútvarpsins sem hefur haft sig mikið í frammi á auglýsingamarkaði auk þess að hafa lögboðin afnotagjöld. Í því árferði sem er núna er hætta á því að slík staða geti orðið til þess að einkareknir fjölmiðlar leggist af. Það eru umbrotatímar og þá er aðhald fjölmiðla og lýðræðisleg umræða nauðsynleg. Það er ljóst að einn sterkur fjölmiðill dugar ekki til, það þarf fleiri raddir til að endurspegla samfélagið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka