Á háskólastigi útskrifuðust 3.521 nemendur með 3.553 próf skólaárið 2006-2007.
Aldrei hafa fleiri útskrifast úr námi á háskólastigi á Íslandi á einu skólaári
síðan gagnasöfnun Hagstofu Íslands hófst árið 1995. Brautskráðum nemendum
fjölgaði um 159, eða 4,7% frá árinu áður. Konur voru tveir þriðju (67,6%) þeirra
sem útskrifuðust með próf á háskólastigi og karlar þriðjungur (32,4%)
útskrifaðra.
Ekki hafa fleiri lokið meistaragráðu á Íslandi á einu
skólaári til þessa. Þeir voru 612 og fjölgaði um 201 frá fyrra ári, sem er
fjölgun um 48,9%. Rúmlega tvöfalt fleiri luku meistaragráðu þetta ár en
skólaárið 2004-2005, þegar 292 luku þessu námi, að því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands.
Alls luku 10
doktorsprófi á skólaárinu, 4 karlar og 6 konur. Það eru 5 færri en árið á
undan.
Flestar brautskráningar á háskólastigi eru vegna nemenda sem ljúka
fyrstu háskólagráðu. Þær voru 2.505 talsins skólaárið 2006-2007, og hafa ekki
áður útskrifast svo margir með fyrstu háskólagráðu á Íslandi. Brautskráningum
með fyrstu háskólagráðu fjölgaði um 64 frá fyrra ári (2,6%), sem er talsvert
minni fjölgun en undanfarin ár. Nú fjölgar útskrifuðum háskólanemendum aðallega
vegna fjölgunar nemenda sem ljúka meistaragráðu.