Björn Bjarnason: Ákveðinn misskilningur í gangi

Björn Bjarnason.
Björn Bjarnason.

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, segir á vef sínum að svo virðist sem misskilningur sé um í hverju verkefni þeirra Valtýs Sigurðssonar ríkissaksóknara og Boga Nilssonar, fyrrverandi ríkissaksóknara felast. Eins og fram hefur komið hefur þeim verið falið að kortleggja stöðuna nú eftir hrun bankanna.

„Mér virðist þess misskilnings gæta um hlut þeirra Valtýs Sigurðssonar ríkissaksóknara og Boga Nilssonar, fyrrverandi ríkissaksóknara, að verkefni þeirra sé að rannsaka eða stjórna rannsókn einstakra mála, sem kunna að spretta af hruni bankanna og vísað er til lögreglu.

Málsmeðferðin er tvíþætt.

Í fyrsta lagi að kortleggja stöðuna, átta sig á umfangi og stofna til tengsla við þá, sem þegar eru teknir til við að rannsaka einstök mál, án þess að um lögreglumál sé að ræða. Þetta starf er að fara af stað. Ríkissaksóknari telur, að líklega þurfi erlenda sérfræðinga til að átta sig á öllum þráðum til að heildarmyndin fáist. Hann hefur kynnt málið fyrir allsherjarnefnd alþingis.

Í öðru lagi að rannsaka einstök mál í samvinnu við lögreglu. Hugmynd mín er, að þarna komi sérstakur saksóknari til sögunnar og er frumvarp um hann á lokastigi í vinnslu á mínum vegum.

Hvert skref, sem stigið hefur verið í þessu máli, hefur verið kynnt á opinberum vettvangi. Ríkissaksóknari kynnti hugmynd um kortlagninguna, ég samþykkti hana og skýrði fyrst frá henni á alþingi. Ég lít á hana sem nauðsynlegan og tímabæran undirbúning undir sakamálarannsóknina sjálfa, verði efnt til hennar, og viðleitni til að búa skipulega í haginn fyrir hana, einfaldlega til marks um vönduð vinnubrögð," að því er fram kemur á vef dómsmálaráðherra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka