Treysta konum betur en körlum

Yfir sextíu prósent þeirra sem tóku þátt í Þjóðarpúlsi Capacent Gallup telja að ástandið væri betra á Íslandi ef fleiri konur hefðu verið við stjórn fjármálafyrirtækja landsins undan farin ár. Rúmlega 34% svarenda eru þeirrar skoðunar að efnahagsástandið væri hvorki betra né verra en það er í dag ef fleiri konur hefðu verið við stjórn fjármálafyrirtækja undanfarin ár en einungis 4% telja að efnahagsástandið væri verra. Marktækur munur er á afstöðu kynjanna.

Tæplega 77% kvenna telja að efnahagsástandið væri betra í dag ef fleiri konur hefðu verið við stjórn fjármálafyrirtækja. Tæplega helmingur karla er sömu skoðunar. Jafnframt er marktækur munur eftir aldri og stjórnmálaskoðun. Eftir því sem fólk er eldra er það líklegra til þess að telja að efnahagsástandið væri betra ef konur hefðu verið við stjórn fjármálafyrirtækja undanfarin ár.

Um 44% kjósenda Sjálfstæðisflokksins telja að efnahagsástandið væri betra ef fleiri konur hefðu verið við stjórn fjármálafyrirtækja undanfarin ár á meðan sambærilegt hlutfall kjósenda Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs annars vegar er 75% og Samfylkingarinnar hins vegar er tæplega 73%.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert