Þrátt fyrir fjármálakreppu eru framundan ein stærstu bókajól Íslandssögunnar, að sögn Kristjáns B. Jónassonar, framkvæmdastjóra Félags íslenskra bókaútgefenda.
Skráðir titlar í Bókatíðindum að þessu sinni eru 759. Í fyrra voru skráðir titlar 800, sem var algert metár.
Frumsamin íslensk skáldverk eru 72 að tölu. Þeim hefur fjölgað talsvert á undanförnum árum. Þá hefur þýddum skáldverkum fjölgað.