Hlýjar kveðjur frá Færeyingum

Íslenski og færeyski fáninn
Íslenski og færeyski fáninn

Samtökum atvinnulífsins hafa borist hlýjar frændkveðjur frá Føroya Abeiðsgevarafelag - samtökum atvinnulífsins í Færeyjum. Í bréfi formanns samtakanna segir Jóhan Páll Joensen að Færeyingar viti að framundan sé mikið átak hjá Íslendingum sem fáir geti sett sig inn í og skilið en Færeyingar hafi verið í svipaðri stöðu og notið hlýlegs viðmóts og skilnings frá Íslendingum.

Þor og dugur hafi alltaf verið aðalsmerki íslensku þjóðarinnar og segjast færeyskir atvinnurekendur vera sannfærðir um að Íslendingum muni takast að byggja upp blómlegt atvinnulíf að nýju.

Sjá nánar á vef Samtaka atvinnulífsins

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert