Línuskipinu Kristínu ÞH-157 var fagnað þegar það lagðist að bryggju í nýrri heimahöfn á Húsavík í morgun. Þetta er fyrsta koma skipsins síðan útgerð þess, Vísir hf., færði heimahöfn Kristínar frá Grindavík til Húsavíkur.
Bergur Elías Ágústsson sveitarstjóri Norðurþings var fyrstur um borð í morgun og færði Njáli Kolbeinssyni skipstjóra og áhöfn hans tertu í tilefni komunnar.
Kristín ÞH var með 75-80 tonna afla sem var nánast öllum ekið til vinnslu í öðrum starfsstöðum Vísis hf. en á Húsavík. Ástæða þess er að á Húsavík er einungis unnin ýsa og ýsuaflinn hjá Kristínu í þessari veiðiferð var einungis tvö til þrjú kör.