Stjórnvöld afþakki loftrýmiseftirlit Breta

Sambandsstjórn Farmanna og fiskimannasambands Íslands skorar á stjórnvöld að afþakka aðkomu Breta að því loftrýmiseftirliti sem þeim er ætlað að sinna nú á haustdögum. 

Stjórnin segir að þeim fjámunum sem sparist við það að losna undan afskiptum Breta sé mun betur varið með því að losa um þá alvarlegu samdráttarfjötra sem Landhelgisgæsla Íslands sé bundin um þessar mundir. Fjötra sem lami alla eðlilega starfsemi hennar.                       

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert