Stjórn Lífeyrissjóðsins Stapa ákvað í dag að lækka vexti á sjóðfélagalánum um hálft prósentustig, úr 5,7% í 5,2%. Lækkunin tekur gildi 1. desember næstkomandi.
„Markmið með lækkuninni er að koma til móts við greiðendur sjóðfélagalána í þeim erfiðleikum sem að steðja,“ segir Kári Arnór Kárason framkvæmdastjóri sjóðsins.
Hann segir jafnframt ljóst að talsverðir greiðsluerfiðleikar séu framundan hjá mörgum sjóðfélögum. Stjórn sjóðsins vilji með þessu leggja sitt að mörkum til að létta greiðslubyrði sjóðfélagalána á næstunni.
„Það er ljóst á svona tímum að háir vextir skila ekki endilega hærri vaxtatekjum, þar sem há greiðslubyrði eykur líkur á útlánatöpum. Við teljum því rétt að lækka vexti fremur en hækka við þessar aðstæður,“ segir Kári Arnór Kárason.