ASÍ lýsir furðu og hneykslan

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands lýsir furðu og hneykslan sinni á hvernig mál gengu fyrir sig í aðdraganda að falli bankanna. ASÍ segist í mörg ár hafa gagnrýnt fyrirkomulag kaupréttarsamninga.

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands fjallaði um kaupréttarsamninga æðstu stjórnenda í bönkum og öðrum fjármálastofnunum á fundi sínum í dag.

Miðstjórn ASÍ leggur þunga áherslu á að þau mál sem upp hafa komið síðustu daga verði rannsökuð ofan í kjölinn og hið sanna dregið fram í dagsljósið. Allt annað eykur að mati ASÍ aðeins á þá þungu reiðiöldu sem kraumar nú í samfélaginu og er ekki á bætandi.

„Alþýðusambandið lítur á það sem sitt hlutverk að ganga eftir því að fram fari vandað og fordómalaust uppgjör á því hvers vegna þjóðin er komin í þessa stöðu. Gera þarf upp allar hliðar þessa máls. Hlutverk fjármálastofnana, ríkisstjórna, Seðlabankans og allra annarra megingerenda í atburðarásinni. Lagt er til að fengnir verði óháðir sérfræðingar í þetta verkefni, bæði innlendir og erlendir,“ segir í ályktun miðstjórnar.

ASÍ telur að herða þurfi regluverk banka og fjármálafyrirtækja gagnvart ráðgjöf til einstaklinga og auka eftirlit og heimildir eftirlitsaðila. Þá þurfi að byggja upp traust á Seðlabanka Íslands og stjórn hans. „Í því sambandi er mikilvægt að tryggja fagmennsku í stjórn bankans og taka verður til gagngerar endurskoðunar hvernig staðið er að ráðningu bankastjóra.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert