Ökumaður slapp ómeiddur eftir að hann missti stjórn á bifreið sinni í beygju á Skipagötu á Akureyri. Bifreið hans rakst utan í tvo kyrrstæða bíla, þaðan á tré og staðnæmdist loks á ljósastaur. Ekki leikur grunur á ölvun en svo virðist sem ökumaðurinn hafi misst stjórn á bílnum með fyrrnefndum afleiðingum.
Bifreiðin er illa farin ef ekki ónýt, að sögn lögreglunnar á Akureyri.