Senda 37 milljónir til Kongó

Fjöldi manna hafa týnt ættingjum sínum í Kongó.
Fjöldi manna hafa týnt ættingjum sínum í Kongó. Reuters

Rauði kross Íslands hefur sent 37 milljónir króna til Rauða krossins í Kongó. Féð er tvöfaldur afrakstur söfnunarátaksins Göngum til góðs, sem var að byrjun október. Verður það nota til leitarþjónustuverkefnis þar í landi sem stuðlar að því að sameina fjölskyldur sem hafa sundrast vegna átaka.

Rúmar 18 milljónir söfnuðust í landssöfnuninni sem haldin var 4. október. Í ljósi þess að aðeins safnaðist um helmingur þeirrar upphæðar sem fékkst í landssöfnuninni árið 2006 ákvað stjórn Rauða krossins að tvöfalda þá upphæð með framlagi úr neyðarsjóði félagsins til að standast væntingar Alþjóða Rauða krossins. Þrátt fyrir erfiða stöðu telur Rauði krossinn mjög mikilvægt að standa við skuldbindingar sínar í alþjóðlegum verkefnum.

Segir í fréttatilkynningu að Rauði krossinn sé þakklátur landsmönnum fyrir að sýna samhug með verkefnum Rauða krossins í Kongó þrátt fyrir erfiða tíma. „Það er mikilvægt að geta veitt öðrum þjóðum sem búa við erfið skilyrði aðstoð þó á móti blási á Íslandi, og samstaðan með þeim er ekki síður mikilvæg en það fé sem safnaðist.“

Heimasíða Rauða krossins á Íslandi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert