Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók um þrjú leytið í nótt tvo menn á þrítugsaldri sem höfðu brotist inn í fjóra vörugáma í Miðhrauni í Hafnarfirði. Þeir voru að koma vörum fyrir inn í sendibifreið þegar lögreglan kom á vettvang og handtók þá. Þeir höfðu klippt á lása sem voru á gámahurðunum til þess að komast inn í þá. Málið telst upplýst.