Mjög erilsöm nótt

mbl.is/Július

Mjög mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Þrátt fyrir það eru ekki allar fangageymslur fullar en fimm líkamsárásir komu til kasta lögreglu í nótt, þar af voru fjórar í miðborginni og ein á bensínstöð í Ártúnsbrekku. Níu voru teknir grunaðir um ölvun við akstur.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu slasaðist enginn alvarlega í líkamsárásunum í nótt. Mikill mannfjöldi var í miðborginni enda veður gott.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert