Menn giska á að 2 - 3000 manns séu nú staddir á mótmælafundi á Austurvelli og er torgið nú orðið nær fullt. Fólk er fremur rólegt að sögn blaðamanns mbl.is á staðnum.
Rétt í þessu talaði Ragnheiður Gestsdóttir og þegar hún kom inn á hjálp Færeyinga í ræðu sinni fór fagnaðarkliður um hópinn sem hrópaði húrra fyrir bræðraþjóð okkar.