Ekki er útilit fyrir að lækka þurfi lífeyri og réttindi Lífeyrissjóði verzlunarmanna um næstu áramót. Þetta er niðurstaða tryggingafræðilegrar úttektar, sem gerð hefur verið á stöðu lífeyrissjóðsins.
Fram kemur á heimasíðu sjóðsins, að fyrir liggi að yfirstandandi fjármálakreppa hafi leitt til verðfalls á verðbréfasafni lífeyrissjóðsins og því hafi verið gerð tryggingafræðileg úttekt á stöðu lífeyrissjóðsins miðað við næstu áramót á grundvelli áætlaðra stærða. Niðurstöðurnar sýni áætlaða neikvæða stöðu sjóðsins um 9,6% um næstu áramót.
Lög um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða kveða á um að ef munur eignarliða og skuldbindinga fer umfram 10% verði að grípa til ráðstafana. Reynist niðurstaða ársins í samræmi við áætlun tryggingafræðingsins þurfi ekki að koma til lækkunar lífeyris og réttinda um næstu áramót.
Fram kemur á heimasíðunni, að frá 1997 hafa lífeyrisréttindi verið hækkuð um 21,1% umfram verðlagsbreytingar.