Eldur í alifuglabúi

Eldur kviknaði í húsi í alifuglabúinu Ásmundarstöðum í Ásahreppi í Rangárvallasýslu á níunda tímanum í kvöld. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli var búið að slökkva eldinn áður en slökkvilið bar að garði. Talið er mörg þúsund fuglar hafi drepist.

Eldurinn var ekki mikill, en mikill hiti og reykur myndaðist í búinu. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvað olli eldsvoðanum. Lögreglan segir hins vegar að ekkert fólk hafi verið í hættu.

Lögreglan segir að aðkoman hafi verið ljót.

Dýrlæknir hefur verið kallaður á staðinn og er málið í rannsókn. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert