Lágvöruverslanir hækka mest

Vöruverð hefur hækkað um 25% í Bónus en 15% í …
Vöruverð hefur hækkað um 25% í Bónus en 15% í Krónunni sl. hálft ár mbl.is

Vörukarfa ASÍ hækkaði um 9% - 28% í helsu verslunarkeðjum frá miðjum apríl til októberloka. Mestar hækkanir á verð vörukörfunnar voru í lágvöruverðsverslunum. Í Kaskó hefur karfan hækkað um tæp 28% sl. hálft ár, í Bónus nemur hækkunin ríflega 25% og í Nettó 21%. Af lágvöruverðsverslunum hefur vörukarfan hækkað minnst í Krónunni um tæplega 15%.

Í öðrum verslunum hefur vörukarfa ASÍ hækkað mest í klukkubúðunum 11-11 og Samkaup-Strax og í stórmarkaðinum Samkaup-Úrval, um 18%-19% frá því í apríl. Í Nóatúni nemur hækkun körfunnar 13% á tímabilinu og í 10-11 hefur vörukarfan hækkað um rúm 11%. Minnst hækkun hefur orðið á vörukörfu ASÍ sl. hálft ár í Hagkaupum, tæplega 9%.

Verðlagseftirlitið mælir breytingar á verði vörukörfu sem getur endurspeglað almenn innkaup meðalheimilis. Vörukarfa ASÍ inniheldur allar almennar mat- og drykkjarvörur, t.d. brauðmeti, morgunkorn, pasta, kjöt, fisk, grænmeti, ávexti, pakkavörur, kaffi, gos, safa, auk hreinlætis- og snyrtivara, að því er fram kemur á vef ASÍ.

Nánari upplýsingar á vef ASÍ

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert