Skapvonskan leiddi til slyss

Úrillur gestur skemmtistaðar á Akranesi braut rúðu í útidyrum hússins um helgina og við það  skarst gesturin talsvert á hendi. Hann var að sögn lögreglu færður á sjúkrahúsið í bænum til aðgerðar og fékk síðan gistingu í fangklefa.

Lögreglan á Akranesi segir, að í síðustu viku hafi borið  meira á skemmdarverkum en oft áður og voru lögreglumenn m.a. þrisvar kallaðir til vegna rúðubrota í bílum. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert