Vantar vitni að umferðarslysi

Slysið á Hringbraut. Strætisvagn ók á tvo kyrrstæða bíla.
Slysið á Hringbraut. Strætisvagn ók á tvo kyrrstæða bíla.

Lögreglan lýsir eftir vitnum að umferðarslysi á Hringbraut í Reykjavík laugardaginn 8. nóvember um klukkan 19:20.

„Var óhappið með þeim hætti að almenningsvagn, sem ók austur Hringbraut, ók á tvær kyrrstæðar bifreiðar sem voru á Hringbrautinni. Í vagninum voru nokkrir farþegar sem yfirgáfu vettvang áður en lögregla og sjúkraflutningsmenn komu á staðinn,“ stendur í tilkynningunni.

Vegfarendur sem kunna að hafa orðið vitni að óhappinu eru beðnir um að hafa samband við lögreglu ásamt því sem þeir farþegar í strætisvagninum hafi einnig samband í síma 444 1000.

mbl.is

Bloggað um fréttina

  • Engin mynd til af bloggara Pálmi Freyr Óskarsson: +
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert