Viðræður um Icesave á viðkvæmu stigi

Fánar Evrópusambandsins blakta utan við höfuðstöðvar framkvæmdastjórnar ESB í Brussel.
Fánar Evrópusambandsins blakta utan við höfuðstöðvar framkvæmdastjórnar ESB í Brussel. mbl.is/GSH

Forsætisráðuneytið segir, að viðræður hafi farið fram milli Íslands og Frakklands, sem er forusturíki Evrópusambandsins, í Brussel í dag um deilur tengdar IceSave reikningum Landsbankans í nokkrum Evrópusambandsríkjum.  Fimm manna sendinefnd íslenskra embættismanna er í Brussel vegna málsins. 

Í tilkynningu ráðuneytisins segir, að  samningsumleitanir hafi staðið um nokkurt skeið milli Íslands og Frakklands með það að markmiði að leysa deilurnar um IceSave. Slíkum viðræðum hafi verið haldið áfram í Brussel í dag á fundum sem hafi einkennst af góðum anda og vinsemd.  Ríkisstjórnin sé hæfilega vongóð um að svo verði áfram og viðræðurnar leiði að lokum til þess að samkomulag í þágu allra málsaðila náist. Málið sé á viðkvæmu stigi og ekki hægt að segja meira um það að svo stöddu.

Þá er tekið fram, að enginn tímafrestur sé á þessum viðræðum og fullyrðingar þar um standast alls ekki. Fram kom í fréttum Stöðvar 2 í kvöld að Íslendingar hefðu frest til miðnættis til að leysa deiluna. 


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert