Bankastjórar ríkisbankanna fyrir viðskiptanefnd

Elín Sigfúsdóttir, bankastjóri Landsbankans og Ásmundur Stefánsson, formaður bankaráðs Landsbanka …
Elín Sigfúsdóttir, bankastjóri Landsbankans og Ásmundur Stefánsson, formaður bankaráðs Landsbanka á fundi viðskiptanefndar Alþingis mbl.is/Ómar Óskarsson

Viðskiptanefnd Alþingis þingaði með bankastjórum nýju ríkisbankanna, Landsbanka, Kaupþings og Glitnis, í morgun. Staðan á íslenskum fjármálamarkaði var yfirskrift fundarins með bankastjórum en ætlunin var líka að ræða samþjöppun á fjölmiðlamarkaði og meinta lánveitingu bankanna vegna viðskipta með fjölmiðla.

Í kjölfar frétta af kaupum félags í eigu Jóns Ásgeir Jóhannessonar á 365 miðlum fyrir 1,5 milljarða króna, var því haldið fram að einn eða fleiri hinna nýju ríkisbanka hefðu fjármagnað kaupin að einhverju leyti. Ágúst Ólafur Ágústsson, formaður viðskiptanefndar lýsti því þá yfir að hann hefði áhyggjur af samþjöppun á fjölmiðlamarkaði og mundi krefjast upplýsinga frá bankastjórunum um hvort ríkisbankarnir hefðu komið að viðskiptunum. Bankastjórarnir voru boðaðir á fund viðskiptanefndar í morgun.

Jón Ásgeir og lögmaður hans brugðust ókvæða við yfirlýsingum formanns viðskiptanefndar og hótuðu lögsókn ef hann héldi kröfu sinni til streitu. Í yfirlýsingu sem Jón Ásgeir sendi frá sér fullyrðir hann að fjármagn vegna kaupanna á 365 miðlum hafi ekki komið frá íslenskum banka.

Ágúst Ólafur fagnaði yfirlýsingu Jóns Ásgeirs og sagði jafnframt að henn hefði ekki áhuga á að hnýsast í veski Jóns Ásgeirs. Óskað væri eftir upplýsingum frá bankastjórum ríkisbankanna vegna hugsanlegrar samþjöppunar á fjölmiðlamarkaði og aðkomu ríkisbankanna að henni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert