Fjölmenni er í Laugardalshöllinni á samstöðutónleikunum sem haldnir eru undir yfirskriftinni Áfram með lífið og „hlýleg stemmning“ eins og einn tónleikagesta orðaði það í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins rétt í þessu.
Baggalútur var fyrstur á svið en meðal annarra sem koma fram eru Lay Low, Sálin hans Jóns míns, Ham, Ragnheiður Gröndal, Stuðmenn, Nýdönsk og Bubbi Morthens. Tónleikarnir eru sendir beint út á Rás 2.