Lítill hópur ungmenna, 14 til 16 ára, er enn á Austurvelli að grýta Alþingishúsið. Eggjum, tómötum, melónum og jógúrt hefur verið grýtt í þinghúsið og þá hefur flöskum og steinum verið grýtt í veggi Alþingishússinss. Um sex þúsund manns komu saman til friðsamlegra mótmæla á Austurvelli klukkan þrjú en örsmár hópur ungmenna tók sig fljótt út og hóf að grýta Alþingishúsið. Lögregla heldur sig til hlés vegna framferðis ungmennanna.