Siv Friðleifsdóttir, alþingismaður og Páll Magnússon, fyrrverandi varaþingmaður, hyggjast sækjast eftir formannsembætti í Framsóknarflokknum á flokksþinginu í janúar. Fréttablaðið heldur þessu fram í dag.
Hvorki Guðni Ágústsson formaður né varaformaðurinn Valgerður Sverrisdóttir vildu tjá sig um hvort þau hygðust sækjast eftir forystuhlutverkunum áfram, að sögn Fréttablaðsins.