„Frestun fullnustu refsingar er ávallt bundin því skilorði, að aðili gerist ekki sekur um nýtt brot á skilorðstímanum.“
Svo segir m.a. í grein eftir Pál Ásgrímsson héraðsdómslögmann en hann hefur áður gert það að umtalsefni í grein í Morgunblaðinu, að Jón Ásgeir Jóhannesson situr enn í stjórnum 13 hlutafélaga þrátt fyrir dóm og blátt bann hlutafélagalaga við stjórnarsetu manna í þrjú ár frá því dómur fellur um refsiverðan verknað.