Hér þarf að kaupa flatskjái!

Brotist var inn í hús á orlofssvæði BSRB í Munaðarnesi fyrir skömmu, að sögn fréttavefjarins skessuhorn.is. „Stolið var tækjum og tólum; tölvu og skjávarpa af skrifstofu og úr fundarsal. Svo virðist sem þetta hafi verið venju fremur „reglusamur” þjófur því hann lét vínföng í friði þó leið hans lægi í gegnum barinn.

En þar með var för hans ekki lokið því hann kom við í einu orlofshúsa staðarins og skrifaði þar í gestabók: „Hér þarf að kaupa flatskjái, helst 22 tommu!” 

„Nú er bara spurningin hvort Ögmundur og félagar í BSRB verði við kröfu mannsins?“ spyr fréttavefurinn skessuhorn.is. 

Skessuhorn

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert