Segir sig úr fleiri stjórnum

Jón Ásgeir Jóhannesson.
Jón Ásgeir Jóhannesson. Kristinn Ingvarsson

Hlutafélagaskrá er nú að fara yfir tilkynningar frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni um úrsagnir úr stjórnum sex einkahlutafélaga til viðbótar við þau fjögur sem hann sagði sig úr í síðustu viku.

Jón Ásgeir situr enn í stjórnum þriggja félaga af þeim 13 sem hann var í þegar Páll Ásgrímsson lögmaður, vakti athygli á stjórnarsetu hans með aðsendri grein í Morgunblaðinu í liðinni viku. Þá hefur Tryggvi Jónsson, fyrrverandi aðstoðarforstjóri Baugs, sagt sig úr stjórnum fjölmargra einkahlutafélaga en samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins mun hann hafa setið í yfir tug félaga, þ.e.a.s. þar til í gær.

Jón Ásgeir situr enn í stjórnum 365 hf., 365 miðla ehf. og Haga hf.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert