Héraðsdómur Suðurlands dæmdi mann til greiðslu 40 þúsund króna í sekt fyrir eignaspjöll. Maðurinn kastaði sér upp á húdd bíls á Selfossi og dældaði annað frambretti bílsins. Maðurinn játaði sök. Bótakröfu bíleigandans var vísað frá þar sem ekki þótti ljóst hvort hann hafði þegar fengið tjónið bætt frá tryggingafélagi bílsins.