Jepplingur valt rétt austan við Hvolsvöll í morgun. Ekki urðu slys á fólki sem þykir mesta mildi því að bíllinn var mikið skemmdur. Einn ökumaður var í bílnum og var læknir sendur á svæðið til að skoða hann, en ekki þótti ástæða til að senda ökumanninn á sjúkrahús.
Hálkublettir eru á veginum og biður lögregla á Hvolsvelli fólk um að haga ökuhraðanum eftir aðstæðum.