Viðskiptanefnd Alþingis ákvað í morgun að kalla Davíð Oddsson seðlabankastjóra á fund sinn til að skýra frá þeim upplýsingum sem hann segist búa yfir um beitingu hryðjuverkalaga í Bretlandi gegn íslenskum bönkum. Þetta kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins.
Fram kom að Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingar, lagði til í morgun að Davíð yrði kallaður
fyrir nefndina. Er ætlast til að Davíð mæti á næsta fund, eftir viku.
Sagði Árni nauðsynlegt að opinberir embættismenn skýri frá þeirri
vitneskju sem þeir hafi í þessu máli. Eins þurfi hann að skýra verklag
Seðlabankans í veitingu upplýsinga um fjármálalegan stöðugleika frá því
í maí.