Bæjarráð Akureyrar furðar sig á því að Háskólinn á Akureyri hafi
ekki átt aðkomu að nýstofnuðum samstarfsvettvangi um
Lýðheilsurannsóknir. Tvær helstu lýðheilsurannsóknir á Íslandi hafa
verið unnar á vegum Háskólans á Akureyri og þar er öflug
heilbrigðisdeild sem sinnir jafnframt rannsóknum.
Þegar ákvörðun lá fyrir að Lýðheilsustöð yrði ekki staðsett á
Akureyri var um það rætt að rannsóknastarf stofnunarinnar kynni að
verða staðsett hér. Þegar til kom var rannsóknasvið Lýðheilsustöðvar
einnig sett á stofn innan veggja stofnunarinnar í Reykjavík. Þetta kemur fram í ályktun bæjarráðs í dag.
Bæjarráð mótmælir harðlega þessum vinnubrögðum og beinir því til
þeirra er málið varðar að Háskólinn á Akureyri verði þátttakandi í
samstarfsvettvangi um lýðheilsurannsóknir en fyrir tveimur dögum var kynnt viljayfirlýsing milli heilbrigðisráðuneytis,
Lýðheilsustöðvar, Háskólans í Reykjavík og Háskóla Íslands varðandi samstarfsvettvang um lýðheilsurannsóknir.
Stefnt að hagræðingu í rekstri Akureyrarbæjar
Á fundi bæjarráðs var samþykkt að fela fastanefndum að leggja fram tillögur um hagræðingu í
rekstri en fyrirsjáanlegt er að tekjur Akureyrarbæjar munu lækka allnokkuð á
næsta ári vegna efnahagsaðstæðna í samfélaginu. Við þessu þarf að
bregðast m.a. með hagræðingu í rekstri.