Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hefur verið skipað að loka
skurðstofu og ná fram 10% sparnaði í rekstri sem mun þýða lokun deilda
og uppsagnir starfsfólks. HSS þarf að ná fram 200 milljóna króna
sparnaði. Stofnuninni hefur verið naumt skammtað síðustu ár og hefur
verið rekin fyrir minna fé en sambærilegar stofnanir hér á landi. Þetta kemur fram í Víkurfréttum í dag.
Heilbrigðisráðuneytið gaf stjórnendum stofnunarinnar aðeins rúman
sólarhring til að skila tillögum sínum að sparnaði en jafnframt var
komin tilskipun frá ráðuneytinu um að loka skurðstofunni. Tvær glænýjar
skurðstofur hafa verið innréttaðar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og
eru þær tilbúnar til notkunar með öllum tækjum, samkvæmt Víkurfréttum.
Þær aðgerðir sem stjórnendur Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja þurfa
að ráðast í fela í sér mikla skerðingu á þjónustu við íbúa Suðurnesja.
Þá er m.a. ljóst að starfsemi fæðingardeildar mun skerðast til mikilla
muna frá því sem nú er.