Tillaga Geirs H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttir utanríkisráðherra sýnir hve langt þessir ráðherrar eru komnir frá þjóð sinni. Þetta sagði Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstri grænna, í viðtali við Ríkisútvarpið um bréfaskrif forsætisráðherra til Kjararáðs.
En í bréfinu er óskað tímabundinnar launalækkunar hjá þeim sem heyra undir ráðið fyrir árið 2009.
Segir Ögmundur tillöguna verða eins og blauta tuska í andlit almennings og líklegt megi telja að þátttakendum í útifundum fjölgi enn frekar í kjölfarið.