Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra og Þórunni Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra fyrir þau ummæli þeirra í gær að boða ætti til kosninga á næsta ári. Hann telur ummælin þreytumerki á ráðherrunum sem beri að íhuga afsögn.
„Mér finnst ábyrgðarleysi af ráðherrum í ríkisstjórninni að tala með þeim hætti sem þau gerðu í gær. Mér finnst að bankamálaráðherra Björgvin G. Sigurðsson og umhverfisráðherra Þórunn Sveinbjarnardóttir hafi öðrum hnöppum að hneppa við endurreisn bankakerfisins en að vera í kosningabaráttu,“ segir Jón.
„Ég met þetta sem þreytumerki. Að mínu mati er nú að hefjast seinni hálfleikur í því áfalli sem dunið hefur yfir þjóðina. Við fengum staðfestingu um lán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í gær og erum nú að hefja viðreisnarbaráttuna, sem ég vil nefna svo. Í þeirri baráttu þurfum við óþreytt fólk. Ég lít svo á að við eigum nóg af hæfu folki á varamannabekknum. Það ber að skipta þreyttu fólk út.“
Inntur eftir því hvort hann telji breytinga þörf í liði sjálfstæðismanna við þessar aðstæður segir Jón það vera „fulla ástæðu fyrir forystumenn ríkisstjórnarflokkanna að stokka upp í sínu liði“.
Það eigi jafnt við ráðherra í ríkísstjórn og embættismenn í stofnunum á vegum ríkisins.
Spurður hvort að hann sé þar með að vísa til Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra segir Jón nú kominn upp „ákveðinn vendipunkt í þessu máli“.
„Við erum að hefja viðreisnina. Ég horfi ekki sérstaklega til seðlabankans í þeim efnum. Í þeirri stöðu sem nú er uppi er þörf á að endurnýja svolítið inn á vellinum. Ég hræðist ekki kosningar en við þessar aðstæður sem eru uppi í samfélaginu tel ég það mikið ábyrgðarleysi að eyða tíma í umræður um kosningar, því allir vita að þegar kosningar eru ákveðnar riðlast hið hefðbundna starf þingsins. Ég tel að slík umræða sé mjög ótímabær.“