Stígamót afhentu í dag fyrstu jafnréttisviðurkenningu sína við hátíðlega athöfn í Iðnó í tengslum við Evrópumálstofu um kynbundið ofbeldi.
Viðurkenninguna hlutu þær Þorgerður Einarsdóttir, Margrét Steinarsdóttir, Kolbrún Halldórsdóttir, Katrín Anna Guðmundsdóttir og Matthildur Helgadóttir. Var þeim þakkað starf sitt fyrir samtökin, fyrir kvenréttindabaráttuna og baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi.