Settur hefur verið á laggirnar undirskriftarlisti á netinu þar sem stjórnvöld eru hvatt til þess að hrinda af stað öflugum aðgerðum vegna þess vanda sem blasi við íslenskum heimilum.
„Við undirrituð skorum hér með á stjórnvöld að hrinda nú þegar í framkvæmd öflugum mótvægisaðgerðum vegna þess alvarlega efnahagsvanda sem íslensk heimili standa nú frammi fyrir.
Við beinum sjónum okkar sérstaklega að húsnæðislánum landsmanna og sjáum ekki aðra leið færa en frekari aðkomu stjórnvalda.
Fjölmargir hafa nú þegar stigið fram fyrir skjöldu og lagt fram ýmsar tillögur að aðgerðum sem stjórnvöld geta gripið til vegna þessa mála. Sem dæmi má nefna að fella niður skuldir og að afnema eða frysta verðtryggingu. Eins hafa fleiri en ein útgáfa af tillögum um endurfjármögnun lána eða skuldbreytingu þeirra litið dagsins ljós.
Skorist stjórnvöld undan íhugum við að hætta að greiða af húsnæðislánum okkar frá og með 1. febrúar 2009," að því er segir í tilkynningu.
Vefurinn Sláum skjaldborg um heimilin