Forsvarsmenn Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum hafa ekki fengið neinar upplýsingar um eina af þremur millifærslum sem fóru á milli tveggja gömlu bankanna 6. október. Fjárhæðin nemur 30 þúsund evrum eða um 5,4 milljónum króna. Hinar tvær fundust 18. nóvember. Féð fékk Vinnslustöðin greitt inn á reikning annars þeirra og ætlaði að færa yfir til hins og greiða inn á lán.
Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmdastjóri sjávarútvegsfyrirtækisins Vinnslustöðvarinnar, segir að á meðan peningar týnist í kerfinu þori þeir ekki að koma heim með stórar upphæðir. Stærri peningaupphæðir Vinnslustöðvarinnar komi inn í landið í skömmtum.
„En á meðan ástandið er svona eru menn ekki tilbúnir að senda mikið af peningum á milli. Það er glórulaust að flytja heim peninga á meðan við eigum á hættu að týna þeim.“ Hann segir þó útlit fyrir að ástandið sé að batna.
Velta Vinnslustöðvarinnar hvern mánuð er á bilinu 400 til 800 milljónir króna og því hefur týnda upphæðin engin úrslitaáhrif á reksturinn. „En svona á þetta ekki að vera.“