Stofnanir ríkisins eru byrjaðar að setja reglur til að spara útgjöld vegna efnahagskreppunnar.
Yfirstjórn Vegagerðarinnar hefur ákveðið að aðhaldi verði beitt til að draga úr útgjöldum. Þannig á að takmarka akstur, dagpeninga, kaup á sérfræðiþjónustu og eignakaup eins og kostur er. Aðeins er gert ráð fyrir einum svæðisfundi á næsta ári en öðrum fundum verður frestað.
Þá verður dregið úr ferðum á fundi og ráðstefnur erlendis eins og kostur er og færri fulltrúar frá Vegagerðinni munu sækja fundi og ráðstefnur en alla jafna.