Engin skrifleg próf á laugardögum

Komið hefur í ljós, að í nokkrum deildum Háskóla Íslands verða munnleg próf á laugardögum líkt og verið hefur. Fram kom á vefnum student.is í dag, að engin próf yrðu á laugardögum nú fyrir jólin en það átti við um skrifleg próf.

Munnleg próf verða til að mynda í lagadeild HÍ á laugardögum.

Haft er eftir Hreini Pálssyni, prófstjóra, að með þessu sé brugðist við óskum frá fjölskyldufólki og trúarhópa sem halda laugardaga heilaga.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert