Verðbreyting, sem er að meðaltali 4,38% til hækkunar, tekur gildi í vínbúðum ÁTVR í dag. Verð breytist á 1023 tegundum af þeim 1706 tegundum áfengis sem eru í boði í Vínbúðunum, 160 tegundir lækka í verði, 863 hækka en verð verður áfram óbreytt á 683 tegundum.
Fram kemur í fréttatilkynningu að með verðbreytingunni koma Vínbúðirnar til móts við óskir innflytjenda um tíðari verðbreytingar vegna ástandsins í efnahagsmálum og mikilla gengisbreytinga. Álagningarprósenta ÁTVR helst óbreytt eins og áður og áfengisgjöld, sem vega þungt í útsöluverðinu, breytast ekki heldur.