Harður árekstur varð á mótum Kringlumýrarbrautar og Listabrautar á tíunda tímanum í kvöld. Par sem var í öðrum bílnum hljóp frá vettvangi en var handtekið skammt frá stuttu síðar. Leikur grunur á að þau hafi verið undir áhrifum fíkniefna.
Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu voru bifreiðarnar mikið skemmdar og voru farþegarnir í hinni bifreiðinni fluttir til aðhlynningar á slysadeild.
Ekki liggur fyrir hversu margir þeir voru eða hversu alvarleg meiðsl þeirra voru.