Kveikt verður á jólaljósum Oslóartrésins á Austurvelli í dag kl. 16. Tréð verður að venju skreytt fallegum ljósum en að auki mun Jólaórói Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra 2008, Grýla prýða tréð. Þetta er í þriðja sinn sem tréð er prýtt jólaóróum frá Styrktarfélaginu.
Þau Katrín Ólína Pétursdóttir og Hallgrímur Helgason leggja Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra lið í ár við hönnun jólaóróans, Grýlu. Katrín Ólína hannar óróann en Hallgrímur hefur samið nýtt kvæði um Grýlu sem fylgir óróanum, sem hann frumflytur á Austurvelli í dag.