Hátt í átta hundruð ökumenn hafa verið stöðvaðar í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Enginn þeirra reyndist ölvaður.
Í tilkynningu lögreglunnar segir að ökumenn hafi almennt tekið þessum afskiptum almennt mjög vel. Öflug sveit lögreglumanna hafi verið á vettvangi og því hafi eftirlitið gengið að mestu snuðrulaust fyrir sig.
Um er að ræða átak gegn ölvunarakstri en markmið þess er að vekja athygli á þeirri hættu sem stafar af ölvunarakstri og hvetja fólk til almennrar varkárni í umferðinni. Minnt er á viðvörunarorðin Eftir einn ei aki neinn en þau eiga alltaf við. Átakið nær einnig til aksturs undir áhrifum fíkniefna en afleiðingar þess eru sömuleiðis sagðar geta verið skelfilegar.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leggur um þessar mundir áherslu á aukið sýnilegt eftirlit á og við stofnbrautir í umdæminu, inni í íbúðahverfum og við verslunarmiðstöðvar.
„Með þessu vill hún leggja sitt af mörkum til að íbúar og aðrir sem dvelja á höfuðborgarsvæðinu geti átt ánægjulegar stundir við jólaundirbúning á komandi vikum,“ að því er fram kemur í tilkynningu lögreglunnar.
Er þess þar einnig getið að önnur lögreglulið á Suðvesturlandi haldi líka úti sérstöku umferðareftirliti af þessu tagi en um sameiginlegt átak þessara aðila sé að ræða. Hinu skipulega eftirliti er haldið úti á ýmsum tímum sólarhrings og á mismunandi stöðum í umdæmunum. Sameiginlegu átaki lögregluliðanna á Suðvesturlandi ljúki um áramót.