Stjórn Samfylkingarinnar á Akureyri mótmælir niðurskurði svæðisstöðva Ríkisútvarpsins á landsbyggðinni. Segir í ályktun frá stjórninni að skorað sé á menntamálaráðherra og ríkisstjórnina að sjá til þess að þessi skammsýna og fjandsamlega atlaga fyrirtækis í eigu allra landsmanna að landsbyggðinni verði ógilt.
Í ályktuninni segir, að svæðisstöðvarnar hafi gengt mjög mikilvægu félagslegu og menningarlegu hlutverki á þeim svæðum sem þær hafi þjónað. Líta beri á aðgerðir stjórnenda Ríkisútvarpsins ohf. sem landsbyggðarfjandsamlegar og það megi teljast furðulegt að þeim sömu stjórnendum skuli detta í hug að ráðast að þessari mikilvægu starfssemi útvarps allra landsmanna úti í hinum dreifðu byggðum.