Alla fimmtudaga fram að jólum verður Morgunblaðinu dreift í aldreifingu á höfuðborgarsvæðinu. „Með þessu móti viljum við gleðja fólk og gefa þeim sem ekki eru þegar orðnir áskrifendur tækifæri til þess að kynnast þessu geysilega öfluga blaði,“ segir Gylfi Þór Þorsteinsson, auglýsingastjóri Árvakurs.